Líflandspróf Vorstehdeildar verður haldið dagana 30. September – 2. október. Boðið verður upp á unghundaflokk, opin flokk í blönduðu partýi og keppnisflokk. Dómarar prófsins verða, Tore Chr Røed, og Pétur Alan Guðmuðmundsson mund dæma keppnisflokk með Tore. Fulltrúi HRFÍ veður Svafar Ragnarsson. Prófstjórar eru, Guðni Stefánsson og Díana Sigurfinnsdóttir
Dagskrá:
30. sept. Verður boðið upp á unghundaflokk og opin flokk, blandað partý dómari Tore Chr Røed.
01. okt Verður boðið upp á unghundaflokk og opin flokk í blandað partýi dómari Tore Chr Røed.
02.okt Verður boðið upp á keppnisflokk, dómarar Tore Chr Røed og Pétur Alan Guðmundsson.
Veitt verða verðlaun fyrir besta hund í unghunda- og opnum flokki báða dagana auk verðlauna fyrir sæti í keppnisflokki.
Bráð
til sóknar þurfa þátttakendur að útvega sjálfir.
Prófsvæðið verður í nágrenni við höfuðborgarsvæðið en við vekjum athygli á því að heiðin verður smöluð 17. september og gert er ráð fyrir því að seinni leitir fari fram laugardaginn 2.október.
Skráning í prófið.
Á Skrifstofu HRFÍ eða símleiðis í 588 5255 þar sem greitt er með því að gefa upp kortanúmer. Einnig er hægt að millifæra á HRFI á reikning 515-26-707729 Kennitala: 680481-0249 og setja nafn hunds og prófnúmer 502212 í skýringu á færslunni ásamt að senda afrit af greiðslu á hrfi@hrfi.is og vorsteh@vorsteh.is
Verðskrá veiðiprófa: Veiðipróf einn dagur 6.800 Veiðipróf 2ja daga 10.200 Veiðipróf 3ja daga 13.500
Við skráningu þarf að koma fram: -Nafn eiganda -Nafn hunds -Ættbókarnúmer -Nafn leiðanda -Hvað flokk er skráð í -Hvaða daga -Prófnúmer 502212
Vinsamlega athugið að síðasti skráningardagur í prófið er mánudagurinn 26. september á miðnætti.
Birt íForsíðufrétt|Slökkt á athugasemdum við Líflandspróf Vorstehdeildar 30. september – 2 október.
Lífland sem er styrktaraðili Vorstehdeildar er með 20% afslátt af miklum fjölda öryggisvara fyrir gæludýr dagana 6 – 11 september. Öryggisdagar gæludýra í verslunum Líflands um allt land og í vefverslun. Endilega nýtið ykkur þetta góða tilboð kæru félagar. Verslum við þá sem styðja við starf deildarinnar.
Birt íForsíðufrétt|Slökkt á athugasemdum við Öryggisdagar gæludýra hjá Líflandi
Annað árið í röð vinnur snögghærða vorstehliðið í Norsk Mesterskap liðakeppninni , NM-lag á heiði. Dómarar voru Íslandsvinirnir Andreas Bjørn og Rune Nedrebø
Þess má einni geta að einn liðsmaður liðsins hefur einnig dæmt hér á landi en það er Robert Brendan Síðan hefur hann Øystein Dahl heimsótt okkur ásamt sínum betri helmingi, Ellen Marie Imshaug.
Birt íForsíðufrétt|Slökkt á athugasemdum við Gull til snögghærða vorsteh í Noregi.
Prófstjóranámskeið var haldið þann 30.ágúst í Sólheimakoti. Leiðbeiendur voru dómararnir Pétur Alan Guðmundsson og Svafar Ragnarson. Það er gott fyrir okkur að fá fleiri í hópinn sem geta tekið að sér þetta miklvæga hlutverk í komandi prófum en síðasta námskeið var haldið árið 2015.
Birt íForsíðufrétt|Slökkt á athugasemdum við Prófstjóranámskeið
Fyrri dagur NKU norðulandasýningar HRFÍ var haldin í dag og voru hundar í tegundahóp 7 í dóm í dag. Það voru 3 strýhærðir og 17 snögghærðir Vorsteh hundar skráðir, dómari var Henric Fryckstrand frá Svíþjóð.
Strýhærður Vorsteh
Allir þrír hundarnir sem sýndir voru í sýndir í unghundaflokki.
Ljósufjalla Vera – Excellent, CK. 1. BTK CERT NACAC Jun. CERT BIR
Ljósufjalla Heiða – Excellent, CK 2.BTK R.NCAC
Ljósufjalla Myrra – Excellent.
Snögghærður Vorsteh – Rakkar
Hvolpaflokkur
Zeldu DNL Lukku Láki – SL
Zeldu DNL Lukku Móri – SL
Opin flokkur
Ísþoku Jaskur – Excellent, CK 2.BHK CERT R.NCAC
Zeldu CNF Eldur – Excellent, CK 3.BHK
Vinnuhundaflokkur
Veiðimela Bjn Frosti – Excellent, CK 4.BHK
Meistaraflokkur
Rugdelias ØKE Tiur – Excellent, CK 1.BHK NCAC BIM
Veiðimela Bjn Orri – Excellent
Öldungaflokkur
Veiðimela Jökull – Excellent, CK Vet.CERT BIK – keppir í besti öldungur sýningar á morgun sunnudag.
Snögghærður Vorsteh – tíkur
Hvolpaflokkur
Zeldu DNL Næla – SL – BIK
Zeldu DNL Njála – SL
Zeldu DNL Atla – SL
Unghundaflokkur
Veiðimela Cbn Tikka – Excellent, CK 2.BTK CERT R.NCAC Jun.CERT. Ísl. m.stig – keppir í besti „junor“ sýningar á morgun, sunnudag.
Veiðimela Cbn Terracotta- Very Good
Meistarflokkur
Legacyk Got Milk – Excellent, CK 1.BTK NCAC BIR – 1. sæti í TH 7 og tekur þátt í úrslitum sýningar á morgun, sunnudag.
Birt íForsíðufrétt|Slökkt á athugasemdum við NKU norðurlandasýning HRFÍ 20.ágúst.
Sækipróf DESÍ var haldið dagana 9. og 10. ágúst. Sú nýbreyttni var að prófið var haldið á virkum dögum og var prófsetning báða dagana kl.15:00. Prófstjóri var Ólafur Ragnarsson og dómarar prófsins voru Unnur Unnsteinsdóttir og Guðni Stefánsson. Seinni daginn voru 4 unghundar með fullt hús stiga og fór því fram bráðabani sem fól í sé að sókn á einn flugi í tímatöku og fóru leikar þannig að Vinaminnis Grimmhildur Grámann var með besta tímann eða rétt rúmar 27 sek. Einnig var liðakeppni og var dregið í þrjú liði í upphafi prófs. Óskum við þátttakendum til hamingju með árangurinn, og þökkum prófstjóra, dómurum og starfsmönnum prófsins kærlega fyrir en þetta var jafnframt síðast próf sumarsins.
Um helgina var sækipróf og sækihluti Meginlandsprófs haldið að vegum Fuglahundadeildar. Met þátttaka var í prófinu eða 25 hundar skráðir hvorn dag og við erum nokkuð viss um að þetta sé einnig metþáttaka Vorsteh hunda í sækiprófi. Þrátt fyrir þennan fjölda gekk prófið afburað vel báða dagana, þökk sé góðu skiplagi prófhaldara, þátttakenda og frábæru veðri sem var báða dagana. Góð stemming var í hópnum og sporðrendu þátttakendur niður pylsum og súkkulaði í boði prófhaldara. Við þökkum kærlega fyrir samveruna þess helgina og þökkum prófhöldurum, dómarnum Patrek Sjöström og stafsmönnum prófsins fyrir þeirra vinnu. Glæislegt próf í alla staði.
Glæsileg skráning er í sækipróf FHD um nk. helgi 23 -24 júlí en 24 hundar eru skráðir hvorn daginn. Bendum þeim sem eru að fara að taka þátt að fylgjast með heimsíðu Fuglahundadeildar og einnig FB síðu deildarinnar varðandi nánari upplýsingar. Við deilum öllum upplýsingum um leið og þær berast á FB síðu Vorstehdeildar. Við minnum þátttakendur á að kynna sér nýjar relgur um bráð, sjá frétt hér neðar á síðunni.
Þátttökulistinn er eftirfranadi, vinsamlega athugið að þetta er ekki ráslistinn hann verður birtur síðar í vikunni. Próstjórar í prófinu eru Atli Ómarsson og Sigurún H. Jónsdóttir og dómari er Patrek Sjöström.
Laugardagur
UH
Nafn hunds
Tegund
Leiðandi
Vinarminnis Grimmhildur Grámann
Weimaraner
Kristín Jónasdóttir
Vinarminnis Móa
Weimaraner
Arna Ólafsdóttir
Arkenstone Með Allt á Hreinu
German short-haired pointing dog
Jón Valdimarss.
Ljósufjalla Vera
German wire-haired pointing dog
G. Stefan Marshall
Ljósufjalla Hel
German wire-haired pointing dog
Sigrún Þorsteinsd.
G-Boss Jr av Brandskegg Søndre
German wire-haired pointing dog
Lárus Eggertsson
Ljósufjalla Myrra
German wire-haired pointing dog
Ágúst Gísli Búason
Veiðimela Cbn Terracotta
German short-haired pointing dog
Erla S. Sævarsdóttir
Ljósufjalla Rökkva
German wire-haired pointing dog
Særós Stefánsd
Veiðimela Cbn Klemma
German short-haired pointing dog
Brynjar Sigurðarson
Hulduhóla Arctic Mýra
Pudelpointer
Atli Ómarsson
Ljósufjalla Heiða
German wire-haired pointing dog
Friðrik Þór Hjartarson
OF /Byrjendaflokkur
Nafn hunds
Tegund
Leiðandi
Edelweiss Vinarminnis Stella
Weimaraner
Arna Ólafsdóttir
Sansas Bejla
German wire-haired pointing dog
Guðni Stefánsson
Háfjalla Parma
English Setter
Ólafur Ragnarsson
Rampen’s Ubf Nina
German short-haired pointing dog
Anna Jóna Halldórsd.
Ice Artemis Aríel
German wire-haired pointing dog
Arnar Már Ellertsson
Ice Artemis Skuggi
German wire-haired pointing dog
Hannes Blöndal
Hlaðbrekku Irma
German wire-haired pointing dog
G. Stefan Marshall
Legacyk Got Milk
German short-haired pointing dog
Friðrik Friðriksson
Fjallatinda Freyr
German short-haired pointing dog
Díana Sigurfinns
Ice Artemis Dáð
German wire-haired pointing dog
Leifur Einar Einarsson
Watereatons Engel
Wire-haired Pointing Griffon Korthals
Gunnar Magnússon
Erik Vom Oberland
Pudelpointer
Atli Ómarsson
Veiðimela Jökull
German short-haired pointing dog
Friðrik Friðriksson
Sunnudagur
UF
Nafn hunds
Tegund
Leiðandi
Vinarminnis Grimmhildur Grámann
Weimaraner
Kristín Jónasdóttir
Vinarminnis Móa
Weimaraner
Arna Ólafsdóttir
Arkenstone Með Allt á Hreinu
German short-haired pointing dog
Jón Valdimarss.
Ljósufjalla Hel
German wire-haired pointing dog
Sigrún Þorsteinsdþ
G-Boss Jr av Brandskegg Søndre
German wire-haired pointing dog
Lárus Eggertsson
Ljósufjalla Myrra
German wire-haired pointing dog
Ágúst Gísli Búason
Ljósufjalla Vera
German wire-haired pointing dog
G Stefan Marshall
Veiðimela Cbn Terracotta
German short-haired pointing dog
Erla S. Sævarsdóttir
Ljósufjalla Rökkva
German wire-haired pointing dog
Særós Stefánsdóttir
Veiðimela Cbn Klemma
German short-haired pointing dog
Brynjar Sigurðarson
Hulduhóla Arctic Mýra
Pudelpointer
Atli Ómarsson
Ljósufjalla Heiða
German wire-haired pointing dog
Friðrik Þór Hjartarson
Sunnudagur
OF/Byrjendaflokkur
Nafn hunds
Tegund
Leiðandi
Edelweiss Vinarminnis Stella
Weimaraner
Arna Ólafsdóttir
Sansas Bejla
German wire-haired pointing dog
Guðni Stefánsson
Háfjalla Parma
English setter
Ólafur Ragnarsson
Rampen’s Ubf Nina
German short-haired pointing dog
Anna Jóna Halldórsd.
Ice Artemis Aríel
German wire-haired pointing dog
Arnar Már Ellertsson
Ice Artemis Skuggi
German wire-haired pointing dog
Hannes Blöndal
Legacyk Got Milk
German short-haired pointing dog
Friðrik Friðrikss
Hlaðbrekku Irma
German wire-haired pointing dog
G. Stefan Marshall
Fjallatinda Freyr
German short-haired pointing dog
Díana S igurfinnsd.
Ice Artemis Dáð
German wire-haired pointing dog
Leifur E. Einarsson
Watereatons Engel
Wire-haired Pointing Griffon Korthals
Gunnar Magnúss
Erik Vom Oberland Veiðimela Jökull
Pudelpointer German short-haired pointing dog
Atli Ómarsson Friðrik Friðriksson
Birt íForsíðufrétt|Slökkt á athugasemdum við Sækipróf FHD nk. helgi 23 – 24 júlí.
Líflandssækipróf Vorstehdeildar var haldið nú um helgina 25 – 26 júní. Átta unghundar og þrír hundar í opnum flokk voru skráðir til þátttöku. Á laugardeginum var prófið haldið við gamla Þingavallarveginn (Kóngsveginn) og á Hafravatni, á sunnudeginum var prófið haldið í nágrenni Sólheimakots og á Hafravatni. Dómarar helgarinnar voru þau Guðni Stefánsson og Unnur Unnsteinsdóttir. Engin sumarblíða var í boði hvorugan daginn en þátttakendur létu það ekki á sig fá. Úrslit helgarinnar voru eftirfarandi:
Hundar helgarinnar voru í unghundaflokki, Hulduhóla Arctic Mýra sem var með 1. einkunn báða dagana, leiðandi Atli Ómarsson og í opnum flokki var það Ice Artemis Dáð sem var með 2. einkunn báða dagana, leiðandi Leifur Einar Einarsson.
Stjórn deildarinnar þakkar dómurum prófsins þeim Unni Unnsteinsdóttur og Guðna Stefánssyni kærlega fyrir að dæma fyirir okkur prófið. Suðningaðilum deildarinnar Líflandi og Vínness fyrir ómetanlegan stuðning og ekki sýst þátttakendum fyrir skemmtilega samveru um helgina. Næsta sækipróf verður helgina 24 – 25 júli á vegum Fuglahundadeildar.
Birt íForsíðufrétt|Slökkt á athugasemdum við Líflandssækiprófið var haldið um helgina
Líkt og í Noregi hefur hér heima verið samþykkt undanþága
frá núverandi veiðiprófsreglum fyrir sækipróf, þessi undanþága verður svo
endurskoðuð á næsta ári.
Tekið skal fram að allt sem gilti áður er enn í gildi, þetta
er einungis viðbót sem stendur þátttakendum til boða.
Breytingarnar fela í sér eftirfarandi:
Auk ferskra eða afþýddra fugla verða sömuleiðis
þurrkaðir og frosnir fuglar leyfðir. Fuglar mega vera án bringu en þá þarf að
fylla í staðinn með einhverju sem við á svo bráðin haldi lögun.
Við vatnasókn er heimilt að nota dummy með
fjöðrum/vængjum af þeim fuglategundum sem leyfilegt er að veiða. Ef notað er
dummy þarf það að vera þakið fiðri/vængjum svo það líkist sem mest fugli, sjá
myndir neðst.
Heimilt er að nota net utan um fugla í
vatnavinnu en einungis á þurrkaða fugla, fugla án bringu og á dummy. Ekki er
leyfilegt að nota net í öðrum þrautum.
Mælt er með því að nota ferska eða afþýdda fugla
sem dráttarfugl í spori. Ekki er krafa um að sama tegund sé notuð til að draga
sporið og lögð er á endann.
Eins og áður eru allar þær fuglategundir sem
heimilt er að veiða leyfðar í öllum greinum.
Fuglarnir skulu vera heilir, en heimilt er að
leyfa að ákveðna líkamshluta vanti (svo sem annan fótinn eða höfuð) sem
eðlilega getur fallið af við haglabyssuskot.
Dómari þarf að samþykkja það sem nýtt er til
sóknar.
Í stuttu máli: allt sem var í
gildi í fyrra er enn í gildi í ár. Auk þess má nota þurrkaðan fugl, frosinn
fugl og ferskan fugl án bringu sem hefur verið skipt út fyrir eitthvað annað
við hæfi. Í vatnavinnu er leyfilegt að nota dummy sem skal vera hulið með fjöðrum/vængjum.
Eftir prufutímabilið verður
endurmetið hvaða bráð verður leyfileg frá og með 2023 og hvaða reglum verður
endanlega breytt við endurskoðun veiðiprófsreglna 1.1.2024.
Reglurnar eru til þess gerðar að
nýta bráðina betur. Þurrkaður fugl endist lengur og hægt er að endurnýta
fuglinn aftur eftir að bringurnar eru teknar úr og notaðar í mat.
Þessi undanþága hefur verið kynnt stjórnum deilda og fengið samþykki stjórnar HRFÍ. Undanþágan gildir frá og með 22.6.2022.
Birt íForsíðufrétt|Slökkt á athugasemdum við LEIÐBEININGAR FYRIR BRÁÐ Á SÆKIPRÓFUM.