Skráningarfrestur á veiðipróf Fuglahundadeildar sem haldið verður helgina 8. – 9. október rennur út á miðnætti 2. októbers
Prófað verður í unghunda og opnum flokki á laugardeginum en á sunnudeginum verður keppnisflokkur haldin.
Dómarar verða Egill Bergmann, Pétur Alan Guðmundsson og Svafar Ragnarsson.
Prófstjóri er Henning Þór Aðalmundarson.
Hægt er að skrá á skrifstofu HRFÍ á opnunartíma (www.hrfi.is) eða millifæra á reikning félagsins:
Kt. 680481-0249 Bankaupplýsingar: 0515-26-707729. Sendið kvittun á hrfi@hrfi.is
Tilgreinið í tölvupósti hvaða flokk og daga skrá á í, ættbókarnúmer hunds og leiðanda.
Viljum hvetja Vorsteh menn og konur að mæta í þetta próf.
Kveðja Vorstehdeild