Nú styttist í Robur og viljum við hvetja alla til að skrá sig í þetta próf.
Veiðiprófið sem enginn má missa af.
*Prófið er nr. 501109 *
Prófið verður haldið dagana 24.-26.september að Úlfljótsvatni. Prófað verður í UF og OF 24 og 25 sept, en keppt í KF þann 26. Dómarar verða Randi Schulze og Björnar Gundersen frá Noregi.
Prófstjóri verður Guðjón Arinbjarnason.
Svafar Ragnarsson verður fulltúri HRFÍ
Mjög góð aðstaða er á staðnum, stórt og mikið gistirými og góð eldhúsaðstaða. Nóg gistirými er ef makar eða vinir vilja njóta þess að vera með. Gistiverðinu verður stillt í hóf og viljum við hvetja fólk til að fjölmenna á Úlfljótsvatn og eiga góða helgi saman á þessum skemmtilega og fallega stað, stutt frá höfuðborginni.
Myndasýning og fyrirlestur verður á kvöldin Prófið kemur til með að fara fram á Lyngdalsheiði og í nágrenni úlfljótsvatns.
Vorstehdeild hlakkar til að sjá sem flesta hunda og menn/konur á fallegum stað sem er stutt frá höfuðborgini