Í gær kvaddi veiðimeistarinn Spyrna fuglahundasportið eftir stutt veikindi. Hún greindist með bráða lifrarsýkingu fyrir stuttu og fór á nýjar veiðilendur í gær. Spyrna var ávallt meðal toppanna í veiðiprófum og á glæsilega árangra úr veiðiprófum eins og sjá má í gagnagrunninum þar sem hún er með eitt hæsta ef ekki hæsta meðalskor Vorstehhunda úr veiðiprófum í heildartölum þ.e. veiðiáhuga, hraða, stíl, sjálfstæði, leitarbreidd, leitarmunstri og samvinnu.
Stjórn Vorstehdeildar sendir Svafari og fjölskyldu hlýjar kveðjur.