Vegna mistaka fór fréttin um úrslit í Ellaprófinu ekki á síðuna og beðist er velvirðingar á því en þau eru eftirfarandi:
Kaldalóns Doppa fékk 2. einkunn. Hún var eini hundurinn sem hlaut einkunn í prófinu og fékk Sigþór Bragason því Ellastyttuna til varðveislu í eitt ár. Engin einkunn náðist í unghundaflokki. Vorstehdeild óskar Sigþóri til hamingju með árangurinn.