Komnar í leitirnar:)

Tíkurnar eru fundnar 🙂
Þær gleðifréttir voru að berast að Birta og Vaka voru að finnast fyrir nokkrum mínútum.  Þær fundust fyrir ofan Skjöldólfsstaði í Jökuldal og voru að vonum fagnaðarfundir hjá Adda og þeim.

Ensk setter tíkurnar Suzie Q (Birta) og Vallfells Vaka týndust s.l. laugardag í Öxarfirðinum og er búið að leita að þeim síðan. Nú undir kvöld sást til tveggja hvítra hunda við afleggjarann að Sænautaseli og stefndu þeir í Jökuldal.  Arnar félagi okkar og eigandi tíkanna (s:840-8891 , 840-8891) er á leið austur til að leita.
Allar upplýsingar eru vel þegnar.

Þessi færsla var birt undir Forsíðufrétt. Bókamerkja beinan tengil.