Hætt við fyrirhugað haustpróf Vorstehdeildar HRFI
Sökum ófyrisjánlegra ástæðna sér stjórnvorstehdeildar sér ekki annað fært en að hætta við áður áætlað haustpróf sem halda átti dagana 24 - 26 sept.
Kveðja
Stjórn Vorstehdeildar HRFI
Úrslit sýningar 28.8.2010
Ungliðaflokkur rakkar.
Hvammsbrekku Brúnó - Eigandi: Guðmundur Tryggvi Sigurson / Ræktandi: Sverrir Tryggvason. Excellent & Meistaraefni & 1. sæti í ungliðaflokk rakkar. Hvammsbrekku Spori - Eigandi: Ragnar Grönvold / Ræktandi: Sverrir Tryggvason. Excellent & 2. sæti ungliðaflokkur rakkar.
Unghundaflokkur rakkar.
Heiðnabergs Breki - Eigandi: Friðbjörn Benidiktson / Ræktandi: Jón Hákon Bjarnason. Excellent & Meistaraefni & 1. sæti í unghundaflokki. & 3. sæti besti rakki tegundar.
Opinnflokkur rakkar.
Rugdelias Nmj Laki - Eigandi: Sigrún Finnsdóttir / Ræktandi: Tore Kallekleiv. Excellent & Meistaraefni & 1. sæti í sínum flokk & 2. sæti besti rakki tegundar.
Vinnuhundaflokkur rakkar.
Ýmir. - Eigandi: Rafnkell Jónsson / Ræktandi: Öystein Dahl og Cecillie Kvien. Excellent & 3. sæti í sínum flokk. Zetu Krapi - Eigandi: Gunnar Bjarnason / Ræktandi: Steinar Ágústson. Excellent & Meistarastig & 1. sæti í sínum flokk & Besti hundur tegundur. CACIB Esjugrundar Stígur - Eigandi: Gunnar Pétur Róbertsson / Ræktandi: Svavar Ragnarsson. Excellent & 2. sæti í sínum flokk.
Ungliðaflokkur tíkur.
Gruetjenet's G-Ynja - Eigandi: Gunnar Pétur Róbertsson & Steinþór Gunnarsson / Ræktandi: Pål Endersen. Excellent & Meistaraefni & 2. sæti í besti tík tegundar.
Nói - Eigandi: Friðrik Þór Hjartarson / Ræktandi: Hreimur Garðarsson. Excellent & 1. sæti í sínum flokki. & Meistarastig. & Besti hundur tegundar. CACIB
Vinnuhundaflokkur tíkur.
Yrja - Eigandi: Lárus Eggjertsson / Ræktandi: Hreimu Garðarsson. Excellent & 1. sæti í sínum flokki & Meistarastig & 2. sæti í besti hundur tegundar. CACIB
Endanlega ákveðið að fella niður alhliðaveiðipróf Vorsteh-deildar.
Við stofnun deildarinna sumarið 2008 var ákveðið að endurvekja alhliðaveiðiprófin sem höfðu þá legið niðri um nokkurn tíma og deildin hélt sitt fyrsta veiðipróf í ágúst það ár. Sumarið 2009 stóðu síðan bæði Vorstehdeild og FHD fyrir alhiliðaveiðiprófi.
Stjórn deildarinnar telur að ekki sé grundvöllur fyrir tveimur prófum en meiri ástæða að halda frekar veglegt 2ja daga próf. Því hefur deildin ákveðið að fyrirhugað próf sem halda átti í ágúst verði fellt niður. Við vonum að þessi ákvörðun verði til að betri skráning fáist í próf FHD og það verði vellukkað.
Stjórn deildarinnar vísar að öðruleiti í bréf um sama efni sem sent var HRFI í vetur og könnun á áhuga félagsmanna á þessu prófi sem er nýlokið.
Int N S UCh N JCh NV-06 NV-08 NV-09 Unghund GP-vinner-06
Rugdelias Nmj Lucilla var valin besta tík tegundar á heimssýningunni
sem haldin er í Kaupmannahöfn þessa dagana.
Enn bætist við glæstan feril þessarar mögnuðu tíkar, nú vann hún besta tík tegundar
á heimssýningunni, en þess má geta að þarna eru sýndir hundar allstaðar að úr
heiminum. Um 22.000 hundar eru sýndir í heildina þannig þetta er enginn smá
sýning.
Lucilla er einnig Norskur veiðimeistari.
Þess má geta að á Íslandi eru 3 hundar náskyldir Lucillu en það eru Rugdelias Nmj
Láki albróðir Lucillu, Qlm Lucienne dóttir Lucillu og Rugdelias Kms Teitur hálfbróðir
hennar.
Alhliðaveiðipróf
Stjórn Vorstehdeildar hefur ákveðið að kanna áhuga fuglahundafólks fyrir alhliðaveiðiprófi deildarinnar. Fyrirhugað er að halda tveggja daga alhliðaveiðipróf í fyrsta sinn hér á landi, dagana 7-8. ágúst nú í sumar í unghunda og opnum flokki báða dagana. Alhliðaprófsdómari frá Noregi mun dæma prófið og verður kynntur síðar hér á síðunni.
Ástæða slíkrar könnunar er að stjórn deildarinnar telur ekki vera grundvöll fyrir tveimur slíkum prófum, þar að segja prófi Vorstehdeildar og FHD.
Vorstehdeild hefur staðið fyrir alhliðaveiðiprófum undanfarin tvö ár með vaxandi áhuga. Fyrsta árið voru 7. hundar skráðir og í fyrra 11. hundar.
Nú bar svo við í fyrra að FHD stóð fyrir sínu fyrsta alhliðaveiðiprófi sem ekki var vel sótt, aðeins 5. hundar skráðir til leiks.
Ef svipaður áhugi er í ár eins og í fyrra þá gerir það samtals um 16. skráningar í tvö próf. Í ljósi þess hefur stjórn Vorstehdeildar ákveðið að kanna áhuga fuglahundafólks og biður alla þá sem ætla að mæta í próf Vorstehdeildar að skrá sig hér fyrir neðan fyrir 28. Júní, svo hægt sé að meta hvort slíkt próf myndi standa undir sér.
Þess má geta að stjórn Vorstehdeildar sendi snemma í vor erindi til sjórnar HRFI tillögu varðandi alhliðaveiðiprófin. Það lagði stjórn Vorstehdeildar til að FHD og Vorstehdeild myndu skiptast á að halda alhliðapróf annað hvert ár. Þá væri öruggt að slík próf myndu standa undir sér fjárhagslega, hægt væri að flytja inn reynda dómara frá Noregi og halda vegleg tveggja daga próf. Vorstehdeild bauð FHD að byrja nú í sumar og Vorstehdeild þá á næsta ári.
HRFI samþykkti þessa tillögu Vorstehdeildar en dró svo þá samþykkt til baka nú í júní eftir að FHD mótmælti tillögunni af einhverjum ástæðum.
Eins og áður sagði hvetur stjórn Vorstehdeildar alla sem hafa hugsað sér að mæta í prófið til að senda póst og melda sig inn. Í ljósi þeirrar könnunar mun stjórn Vorstehdeildar taka ákvörðun um hvort alhliðaveiðiprófið yrði haldið!
Facebook
Búið er að stofna grúppu áhugafólks um Vorsteh hunda á Facebook sem kallast Vorsteh klúbbur.
Ekki hafa stofnendur grúppunnar haft samband við stjórn Vorstehdeildar um samstarf heldur kosið að starfa með sérdeild Írskra Seta og safndeildar FHD eins og stendur á heimasíðu FHD.
Stjórn Vorstehdeildar fagnar þessum liðstyrk, en Vorstehdeild hefur staðið fyrir metnaðarfullum alhliða æfingum undanfarin sumur, eða allt frá því að Vorstehdeild endurlífgaði alhliðapróf fyrir fuglahunda hér á landi.
Óhætt er hvetja alla áhugasama að mæta á þessar æfingar enda menn á staðnum með góða reynslu sem náð hafa langt í alhliðprófum sem haldin hafa verið og því margt hægt að læra af þeim.
Í ljósi þess, sér Vorstehdeild ekki ástæðu til að standa fyrir alhliða æfingum í sumar, enda æfir grúppan einu sinni í viku eftir sömu forskrift og Vorstehdeild hefur gert undanfarin ár.
Það skal þó tekið fram þar sem margir hafa haft samband við stjórn Vorstehdeildar að þessi Facebook grúppa hefur enga tengingu við HRFI né Vorstehdeild. Hinsvegar er alveg sama hvaðan gott kemur, eins og áður sagði fögnum við þessum liðstyrk.
Einnig ber að þakka jákvæða umfjöllun um Vorsteh hunda á heimasíðu FHD. Vorsteh hundurinn er vinsælastur allra grúppu 7. hunda á Íslandi og er það sameiginlegt markmið okkar allra að svo verði um ókomin ár.
Vatnajökulsþjóðgarður
Þar sem málið varðar klárlega okkur veiðihundafólk þá setjum við eftirfarandi inná síðuna okkar fyrir þá sem láta sig málið varða. Eftirfarandi er tekið af http://www.f4x4.is
Nú er komið að því að senda yfirvöldum alvöru skilaboð frá okkur fólkinu í landinu. Við mótmælum lokunum á Vonarskarði, Heinabergsdal, Vikrafellsleið og leiðum í Jökulheimum og á Tungnaáröræfum sem eru í verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð.
Til að undirstrika persónulega þessi mótmæli er hægt að fara inn áwww.f4x4.is/motmaeliog senda umhverfisráðherra og stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs persónulegt mótmælapóstkort.
Skoðið kynningarblaðið „Verjum ferðafrelsið“ sem fylgir Fréttablaðinu þriðjudaginn 22. júní og sjáið myndir frá þessum fallegu ferðamannaleiðum sem á að loka.
Látum ekki sérhagsmunahópa og ferðaþjónustufyrirtæki komast upp með að eiga einkarétt á fallegum ferðaleiðum. Tryggjum rétt hins almenna íslenska ferðamanns til að geta skoðað allar okkar fallegu ferðamannaperlur. Verjum einnig rétt aldraðra, fatlaðra og barna til að geta ferðast um landið okkar.
Næsti deildarfundur Vorsteh-deildar verður næstkomandi mánudag 21. júní á skrifstofu HRFI Síðumúla 15 kl. 20:00
Dagskrá fundar.
Gagnagrunnur Vorsteh-hunda kynntur
Umræða um nýja heimasíðu deildarinnar
Umræður um alhliða veiðipróf deildarinnar
Önnur mál
Skorum á alla sem áhuga hafa á Vorsteh-hundum að mæta og tjá sínar skoðanir og leggja sitt af mörkum í stefnu deildarinnar.
Kveðja.
Stjórnin
Ritnefnd óskar eftir fleiri pennum
Eitt af áherslum Vorstehdeildar á starfsárinu er standa betur að
heimasíðu deildarinnar. Í því sambandi er verið að hanna nýja
síðu og leita að öflugum pennum í ritnefnd til að leggja til. Þeir sem
hafa áhuga á að verða virkir í ritnefndinni eru beðnir um að hafa
samband við stjórnina.
Hvað efnistök varðar þá var gerð óformlega könnun eða talning á því hvaða hundar koma helst við sögu í umfjöllun á vorsteh.is frá upphafi. Með Google forritinu er einfaldlega hægt að telja slíkt á heimasíðunni. Það kemur ekki á óvart að þeir hundar sem virkastir eru í prófum og á sýningum koma hér oftast við sögu. Beðist er velvirðingar á því ef einhver nöfn virkra hunda hafi ekki verið tekin með í talningunni.